Gamlársdagshlaup 2013

Hið árlega gamlársdagshlaup á Sauðárkróki hefst á hádegi á gamlársdag, 31. desember. Skráningar hefjast kl. 12:30 í Íþróttahúsinu og lagt verður af stað þaðan kl 13:00. Vegalengdir eru að eigin vali, hámark 10 km og hægt er að ganga, skokka eða hjóla.

Ekki er um tímatöku að ræða og ekki eru tekin þátttökugjöld, en veitt verða útdráttarverðlaun. Í auglýsingu frá sveitarfélaginu eru allir hvattir til að vera með, ungir sem aldnir, um leið og fólk er hvatt til að sýna varúð í umferðinni.

Fleiri fréttir