Gáskabátar verða smíðaðir á Sauðárkróki
Byggðaráð Skagafjarðar ákvað á fundi sínum í gær að að leggja fram 4.900.000 kr. hlutafé í Mótun ehf. sem mun taka til starfa á Sauðárkróki þegar fram líða stundir. Tilgangur félagsins er framleiðsla báta og annarra vara úr trefjaplasti, rekstur verkstæðis í því sambandi, skyldur rekstur, útleiga og rekstur fasteigna og lánastarfsemi.
Hlutafé félagsins verður 10.000.000 kr. en auk sveitarfélagsins mun Kaupfélag Skagfirðinga eiga jafn stóran hlut og Skagafjarðarhraðlestin, leggur til 200.000 kr. eða 2%.
Fyrirtækið hefur það að markmiði eins og áður er getið að smíða plastbáta og segir Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðaráðs að keypt hafi verið mótin af svokölluðum Gáskabátum en þeir hafa verið smíðaðir um margra ára skeið. Stefán segir að fyrirtækið verði standsett í vetur og vonandi fljótlega farið að vinna í smíðinni. Fyrrverandi eigandi Mótunar og hönnuður skipanna, Reginn Grímsson, mun fylgja fyrirtækinu eftir og hjálpa fyrirtækinu af stað en það mun hafa aðsetur í gamla Ákahúsinu á Sæmundargötu.
-Við höfum miklar væntingar og vonir til þess að fyrirtækið geti orðið stöndugt og burðugt þó það sé ekki markmið sveitarfélagsins í sjálfu sér að eiga þennan hlut að eilífu. Það er gott að koma þessari nýbreytni og nýsköpun inn á svæðið, segir Stefán Vagn og bætir við að þetta muni styrkja Fjölbrautaskólann sem gerir út plastsmíðabraut og ættu báðir aðilar að hafa hag hvor af öðrum.