Geirmundur með jólaplötu í smíðum
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
23.07.2013
kl. 16.14
Skagfirski tónlistarmaðurinn Geirmundur Valtýsson vinnur nú að jólaplötu með frumsömdum lögum og hyggst gefa hana út fyrir næstu jól. Síðasta plata Geirmundar kom út árið 2008 en nú er hann kominn með lög og texta í jólaplötu.
Þessa dagana er Geirmundar á kafi í heyskap á Geirmundarstöðum í Sæmundarhlíð en að því loknu mun hann snúa sér að því að fínpússa lög og texta á nýjustu plötuna.
