Gera ráð fyrir 77 milljón króna rekstrarafgangi hjá Svf. Skagafirði

Fjárhagsáætlun 2014 fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess var samþykkt á fundi sveitarstjórnar á miðvikudag með sjö atkvæðum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi Samfylkingarinnar og Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra sátu hjá. Í greinargerð sveitarstjóra kemur meðal annars fram að áætlunin sýni aðhald og hagkvæmni í rekstri samhliða því að standa vörð um þá þjónustu sem veitt er.  Sveitarfélagið ætlar ekki að hækka gjaldskrár á árinu 2014, er snúa aðallega að börnum, barnafólki og eldri borgurum.

Á vef Svf. Skagafjarðar segir að helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2014 séu í samanlögðum A og B hluta þær að samstæðan skilar 77 milljón króna rekstrarafgangi. Veltufé frá rekstri er áætlað 398 milljónir króna, fjárfestingar áætlaðar 350 milljónir króna og afborganir langtímalána verða 362 milljónir króna. Ný lántaka langtímalána verður 868 milljónir króna samkvæmt áætlun og skuldahlutfall verði 1,41.

Þriggja ára áætlun 2015-2017 var sömuleiðis samþykkt á fundi sveitarstjórnarinnar með sjö atkvæðum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Sigurjón Þórðarson sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Hér er hægt að sjá Fjárhagsáætlun 2014

Hér er hægt að sjá Þriggja ára áætlun 2015-2017

Fleiri fréttir