Gerðu góða ferð á metamót Spretts
Um síðustu mánaðarmót var haldið árlegt Metamót Spretts á nýju svæði félagsins á Kjóavöllum. Skagfirðingarnir Líney María Hjálmarsdóttir og Sæmundur Sæmundsson tóku þátt í mótinu og gerður góða ferð á mölina, eins og fram kemur á heimasíðu Hestamannafélagsins Stíganda.
Í A-flokki hafnaði Líney María í 7. sæti á Bratti frá Tóftum með 8,49. Í B-flokki hafnaði Sæmundur í 8. sæti á Lyftingu frá Fyrir-Barði. Í 150 metra skeiði höfnuðu svo Líney og Gola frá Ólafsfirði í 8. sæti á 15.05. Einnig tóku þau Líney og Sæmundur þátt í töltkeppninni en komust ekki í úrslit þrátt fyrir fínar tölur.