Gjafir fyrir 28 milljónir á sjö árum

Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga var haldinn í gær. Á árinu 2012 færðu samtökin Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga gjafir að verðmæti rúmar 4 milljónir króna. Langstærsta gjöfin var þátttaka í kaupum á nýju bjöllukerfi á sjúkra- og hjúkrunardeild HVE á Hvammstanga alls um 3,5 milljónir króna.

Frá stofnun Hollvinasamtakanna árið 2006 hafa þau fært stofnuninni gjafir fyrir alls 28 milljónir króna. Helstu tekjur samtakanna eru gjafir frá einstaklingu og félögum og sala minningarkorta. Í stjórn samtakanna sitja Guðrún Elín Benónýsdóttir formaður, El´lin R. Líndal, Árndís Alda Jónsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir og Björn Traustason.

Fégar í samtökunum eru allir þeir sem greiða árgjald til samtakanna, 1.000 kr. á ári. Geta allir þeir sem vilja styrkja þetta góða málefni lagt inn á bankareikning 0159-26-200135, kennitölu 711006-2140. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir