Glæsileg firmakeppni Skagfirðings

Verðlaunahafar í atvinnumannaflokki. Mynd: Skagfirðingur.is.
Verðlaunahafar í atvinnumannaflokki. Mynd: Skagfirðingur.is.

Fyrsta firmakeppni hins nýja sameinaða hestamannafélags í Skagafirði, Skagfirðings, fór fram á Sauðárkróki á sumardaginn fyrsta. Tókst hún mjög vel þar sem margir tóku þátt og hlaðið kökuhlaðborð beið keppenda og gesta eftir mótið, þar sem verðlaunaafhending fór fram.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Pollar:
Allir í fyrsta sæti og fengu þakkir fyrir þátttöku
Arndís Lilja og Skræpa frá Síðu
Trausti Ingólfsson og Röðull frá Ytra-Skörðugili
Hrafnhildur Rán og Glói frá Gerðum
Grétar Freyr og Sóldís frá Sauðárkróki
Arnheiður Kristín og Jasmín frá Þorkelshóli

Barnaflokkur:
1. sæti Þórgunnur Þórarinsdóttir og Gola frá Ysta-Gerði
2. sæti Björg Ingólfsdóttir og Fleygur frá Laugardælum
3. sæti Flóra Rún Haraldsdóttir og Gæfa frá Lóni
4. sæti Almar Atli Ólafsson og Móalingur frá Leirubakka
5. sæti Anna Sif Mainka og Ræll frá Hamraenda

Þórgunnur keppti fyrir JF ehf.

Unglingaflokkur:
1. sæti Jódís Helga Káradóttir og Meistari frá Fagranesi
2. sæti Ingunn Ingólfsdóttir og Jötunn frá Dýrfinnustöðum
3. sæti Stefanía Sigfúsdóttir og Ljómi frá Tungu
4. sæti Viktoría Eik Elvarsdóttir og Syrpa frá Hofi
5. sæti Herjólfur Hrafn Stefánsson og Gústa frá Glæsibæ

Jódís keppti fyrir Dögun ehf.

Kvennaflokkur:
1. sæti Guðrún Hanna Kristjánsdóttir og Töffari frá Hlíð
2. sæti Rósanna Valdimarsdóttir og Sprækur frá Fitjum
3. sæti Vigdís Anna Sigurðardóttir og Valur frá Tóftum
4. sæti Helga Rósa og Gýgjar frá Gýgjarhóli
5. sæti Sigfríður J. Halldórsdóttir og Ópera frá Skefilsstöðum

Guðrún keppti fyrir Byggðastofnun

Karlaflokkur:
1. sæti Sveinn Brynjar Friðriksson og Vígablesi frá Djúpadal
2. sæti Pétur Grétarsson og Sóldís frá Sauðárkróki
3. sæti Julian Veuth og Grettir frá Saurbæ
4. sæti Ingólfur Helgason og Aníta frá Kjartansstaðakoti
5. sæti Kristófer Orri Hlynsson og Dúfa frá Breiðsstöðum

Sveinn keppti fyrir Nýprent.

Atvinnumannaflokkur:
1. sæti Skapti Steinbjörnsson og Skál frá Hafsteinsstöðum
2. sæti Finnbogi Bjarnason og Blíða frá Narfastöðum
3. sæti Skapti Ragnar Skaptason og Bruni frá Akureyri
4. sæti : Sina Scholz og Katla frá Hrísum
5. sæti : Steindóra Ólöf Haraldsdóttir og Drífandi frá Saurbæ

Skapti keppti fyrir Hofsstaði ehf.

60+ Heiðursmannaflokkur:
1. sæti Björn Sveinsson og Koltinna frá Varmalæk
2. sæti Símon Ingi Gestsson og Sleipnir frá Barði
3. sæti Búi Vilhjálmsson og Roðadís frá Hólavatni
4. sæti Sveinn Einarsson og Ívar frá Víðimýri

Björn keppti fyrir Sauðárkróksbakarí

Á heimasíðu Skagfirðings er þeim 65 aðilum sem styrktu keppnina færðar þakkir. Fleiri myndir frá mótinu er einnig að finna á heimasíðunni.

 

Fleiri fréttir