Góðir Poolarar
Herra Hundfúll samgleðst Poolurum ynnilega með frábæra byrjun á keppnistímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta enda eru þeir á flottum stað í efri hluta deildarinnar eftir fjórar umferðir.
Fleiri fréttir
-
Stórskemmtileg sýning í Laugardalshöllinni
Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2026 var haldin í Laugardalshöll-inni í Reykjavík 9.-11. október 2026. Feykir komst ekki hjá því að uppgötva að Króksarinn Benedikt Rúnar Egilsson (sem flestir þekkja sem Benna í Bílabúðinni þó hann vinni þar ekki lengur) væri einn af þeim aðilum sem ætlaði að kynna vörur og þjónustu á sýningunni. Á leiðinni suður bárust honum því skilaboð þar sem hann var spurður hvort hann gæti tekið að sér að smella myndum af sýningunni fyrir Feyki og ekki síst ef hann rækist á kunnugleg andlit. Það reyndist sjálfsagt mál og þegar myndirnar bárust í tugatali þá varð ekki hjá því komist að spyrja hann aðeins út í bissnesinn og sýninguna.Meira -
Tölum saman | Leiðari 40. tölublaðs Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 23.10.2026 kl. 17.12 oli@feykir.isLeiðarinn er skrifaður á sunnudagskvöldi og suðvestanvindurinn gnauðar á herbergisglugganum. Það er búið að vera hvasst í allan dag og verður það væntanlega eitthvað áfram. Og mikið lifandi skelfing er rokið nú leiðinlegt.Meira -
Margt smátt | Sigurður Líndal Þórisson skrifar
Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins.Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til.Meira -
Enn er barist fyrir lauginni
Feykir sagði frá því að Skagfirsku sundmeyjarnar sem stóðu fyrir undirskriftum til að mótmæla lokun endurhæfingarlaugarinnar, hafi sent frá sér listann sem taldi 1232 manns, til allra helstu ráðamanna með kröfu um að lokunin verði dregin til baka.Meira -
Umferðarsöryggisáætlun í endurskoðun
Húnabyggð vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið áætlunarinnar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.Meira
