Góður rekstur Húnaþings vestra árið 2008
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
12.05.2009
kl. 09.42
Ársreikningur sveitasjóðs Húnaþings vestra og fyrirtækja var lagður fyrir sveitarstjórn í síðustu viku en niðurstaða rekstrarreiknings samstæðunnar er jákvæður um rúmar 10 milljónir.
Þá var rekstur málaflokka í samræmi við fjárhagsáætlun ársins og tekjur sveitarfélagsins hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Í ályktun frá meirihluta segir að mikilvægt sé að koma með þessa jákvæðu niðurstöðu inn í þann tekjusamdrátt sem blasir við í rekstri sveitarfélaga.