Göngur og ógöngur – Hlýnandi spá í kortunum

Nú eru fyrstu göngur afstaðnar víðast hvar á Norðurlandi en tími til kominn að fara í ógöngur. Það á alla vega við um bílstjórann sem brá sér í ógöngur í gær fyrir utan Árskóla á Sauðárkróki en túnið á umferðareyjunni virðist hafa verið heldur deigt fyrir hestakerruna sem bíllinn dró enda nýlagt og mikil bleyta eftir grenjandi rigningu í gær. Útlit er fyrir þurra daga á Norðurlandi vestra á næstunni og það fer að hlýna með suðvestan 5-10 og þurrt að kalla í dag, en sunnan 3-8 í kvöld.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en smáskúrir S- og V-lands. Hiti 5 til 12 stig, en líkur á næturfrosti í innsveitum.

Á fimmtudag:
Suðvestanátt, 3-10, hvassast NV-til. Skýjað V-lands en annars léttskýjað. Heldur hlýnandi veður.

Á föstudag:
Sunnan og suðvestan 5-13 og bjart veður N- og A-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast NA-til.

Á laugardag:
Suðlæg átt, 13-20 m/s. Rigning S- og V-lands seinnipartinn, en annars þurrt. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:
SV 8-15 og skúrir S- og V-lands en annars úrkomulítið. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast A-lands.

Á mánudag:
SV- og V-átt. Skúrir S- og V-lands, en annars þurrt og bjart. Milt í veðri.

Fleiri fréttir