Grettishátíð samhliða Eldi í Húnaþingi
Hin árlega Grettishátíð verður haldin dagana 26.-28. júlí næstkomandi í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi. Forskot á sæluna er reyndar Víkinganámskeið fyrir 6-10 ára börn sem hófst í gær og lýkur í dag.
Hátíðin er haldin í Grettisbóli á Laugarbakka og að hluta til á Hvammstanga. Einn af hápunktum hátíðarinnar er aflraunakeppni karla og kvenna þar sem keppt er um Grettisbikarinn.
Dagskrána í heild er að finna hér fyrir neðan:
Þriðjudagur 23. og miðvikudagur 24. júlí
Víkinganámskeið fyrir 6-10 ára börn.
Föstudagur 26. júlí - Grettisból Laugarbakka
13:00-17:30 Víkingaleikir fyrir börn á öllum aldri. Farið í kubbspil, refskák, hráskinnaleik, bogfimi, axarkast og aðra fjölbreytta víkingaleiki í Grettisbóli. Engin skráning, aðeins mæta á staðinn með góða skapið.
15:00 Miðfjarðarleikar í Kubb hefjast.
Laugardagur 27. júlí - Hvammstangi
12:30-16:00 Víkingatjald, handverk, leikir og víkingar við Félagsheimilið á Hvammstanga.
Boðið upp á æfingar í bogfimi, víkingahandverk selt og farið í víkingaleiki.
Laugardagur 27. júlí - Grettisból Laugarbakka
19:30 Grettisból – Grillið verður heitt – þið mætið með ykkar „víkingakræsingar“. Sögur sagðar í Grettishringnum, söngur og samvera. Víkingaleikir á staðnum; kubbspil, refskák, bogfimi og hægt að taka æfingu í aflraunum fyrir Grettisbikarinn.
Öllum velkomið að mæta og njóta góðrar stundar.
Sunnudagur 28. júlí
11:00 Sögustund á Bjargi.
12:00 Spes sveitamarkaður opnar. Víkingar á svæðinu, bogfimi og víkingaleikir í gangi.
14:00 Grettisbikarinn – aflraunakeppni karla og kvenna.
17:00 Verðlaunaafhending.
18:00 Dagskrá lýkur.
Grettisbikar er veittur til sterkasta karlmanns og konu úr Húnaþingi vestra.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Grettistaks.