Grimmir Grindvíkingar gómuðu þrjú stig á Króknum
Lið Tindastóls og Grindavíkur mættust á Sauðárkróksvelli í gærkvöldi í 1. deild karla í knattspyrnu. Stólunum hafði gengið vel að undanförnu og með sigri hefðu strákarnir komið sér í bullandi toppbaráttu. Raunin varð hins vegar sú að gestirnir úr Grindavík voru grimmari og unnu verðskuldaðan 0-2 sigur.
Aðstæður voru ágætar meðan á leik stóð, þó var lauflétt Skarðagola í fyrri hálfleik sem truflaði örlítið spilið og sérstaklega gekk markvörðum liðanna illa að sparka fram völlinn. Fátt markvert gerðist framan af leik en þó ljóst að gestirnir ætluðu ekki að láta Tindastólsmenn dvelja lengi á boltanum. Juraj Grizelj var sprækur á vinstri kantinum hjá gestunum og þeir Alex Freyr Hilmarsson og Jóhann Helgason fyrirliði voru aðsópsmiklir á miðjunni. Vörn Tindastóls stóð þó fyrir sínu og Grindvíkingar fengu fá færi þó þeir væru mun hættulegri en heimamenn. Á 41. mínútu gerði Jóhann Helgason fyrsta mark leiksins. Grindvíkingar fengu hornspyrnu frá vinstri eftir einbeitingarleysi í vörn Stólanna, Matthías Friðriksson skallaði boltann í þverslá en gestirnir komu í kjölfarið boltanum strax inn á markteig þar sem Jóhann skóflaði boltanum í markið. Stólarnir sköpuðu sér ágætt færi skömmu síðar en voru taldir brotlegir og staðan í hálfleik því 0-1.
Skarðagolan breyttist í logn í hálfleik og gerðu stuðningsmenn Stólanna sér vonir um að vel spilandi leikmenn Tindastóls gætu nýtt sér ákjósanlegar aðstæður. En það voru Grindvíkingar sem fengu góð færi á upphafsmínútunum. Suðurnesjamenn voru fastir fyrir, grimmari á boltann og pressuðu heimamenn um allan völl. Stólarnir náðu engan veginn upp almennilegu spili og reyndu endalaust langa bolta á hinn eldsnögga Steven Beattie en gestirnir vörðust þessu án mikilla vandkvæða. Á 69. mínútu fengu Grindvíkingar ódýra aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Tindastóls. Boltinn var sendur inn á teig þar sem skallað var út úr teignum en gestirnir skiluðu honum aftur inn á teig þar sem Stólarnir sofnuðu á verðinum og Jóhann skoraði annað mark sitt og gestanna með laglegu skoti í fjærhornið hjá Furness.
Eftir þetta bökkuðu Grindvíkingar og lokuðu enn betur á mark sitt. Tindastólsmenn héldu áfram að reyna langar sendingar á kantmenn sína eða hreinlega langskot en fátt varð til að raska ró Óskars Péturssonar í marki gestanna. 0-2 sigur Grindvíkinga var því sanngjörn niðurstaða.
Of margir leikmenn Tindastóls náðu sér ekki á strik í gærkvöldi og virtust sumir ekki tilbúnir í slaginn sem gestirnir buðu upp á. Vonandi taka menn sig saman í andlitinu því það eru engir léttir leikir eftir í 1. deildinni. Morin var slakur og fátt gekk upp hjá Branco og Tsonis. Atli og Beattie voru líflegir og sýndu góða takta og þá voru Árni og Ingvi Hrannar baráttuglaðir.
Næsti leikur Stólanna er hér heima gegn Selfyssingum föstudaginn 16. ágúst kl. 19:15.