Gróðursetja rúmlega 3.000 kynbættar birkiplöntur

12-15 manns munu gróðursetja rúmlega 3.000 kynbættar birkiplöntur í Brimnesskógum 18.-20. júní. Einnig verður dreift áburði og girðing lagfærð.

Gróðursettar hafa verið um 70.000 birki- og reyniviðarplöntur á undanförnum árum í um 17 ha lands.

Trjáplönturnar eru nú óðum að vaxa úr grasi og framvinda verkefnisins að vonum.

Félag Brimnesskóga býður áhugasömum að fylgjast með framvindu verksins.

 

Fleiri fréttir