Gróðursett í Brimnesskóga
Sjálfboðaliðar úr Reykjavík ásamt umhverfishópi frá Blöndustöð Landsvirkjunar gróðursettu nýlega tólf þúsund og tvöhundruð kynbættar birkiplöntur á ræktunarsvæði Brimnesskóga, félags skammt frá Kolkuósi í Skagafirði. Gróðursett var í 3-4 ha lands en alls hefur félagið rúma 20 ha til afnota af landi í eigu sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Birkiplönturnar sem ræktaðar voru í 40 gata bökkum hjá Barra á Egilsstöðum eru upprunnar úr Geirmundarhólaskógi í Hrolleifsdal.
Af þessum rúmlega 12 þúsundum plöntum voru til samanburðar gróðursettar 300 plöntur í afgirtan reit í grennd við Blöndustöð.
Allir eiga sjálfboðaliðarnir rætur í Skagafirði eða tengjast Skagafirði á einn eða annan hátt og vilja með vinnu sinni styrkja tengslin.
„Pokasjóður og Landbúnaðarráðuneytið hafa styrkt verkefnið myndarlega og er það ómetanlegt“ segir Steinn Kárasonar framkvæmdastjóri Brimnesskóga. Að hans sögn gekk gróðursetningin vel og vill hann koma á framfæri þakklæti til Landsvirkjunar og garðyrkjustjóra Skagafjarðar, KS á Sauðárkróki, Skógræktarfélags Reykjavíkur og allra þeirra sem að verkinu komu.
Á meðfylgjandi myndum má sjá hluta af þeim ungmennum úr umhverfishópi frá Blöndustöð Landsvirkjunar sem gróðursettu.