Guðmundur Haukur endurkjörinn formaður USVH

Héraðsþing USVH var haldið þann 29. mars í Félagsheimilinu Ásbyrgi í umsjón umf. Grettis. Þingfulltrúar mættu vel á þingið en 30 voru mættir af þeim 36 sem hafa seturétt á þinginu. Gestir þingsins voru frá UMFÍ, Helga Guðrún Guðjónsdóttir og Björg Jakobsdóttir og frá ÍSÍ var mættur Gunnlaugur Júlíusson.

Á heimasíðu USVH segir að Gunnlaugur hafi veitt Oddi Sigurðarsyni gullmerki ÍSÍ en Oddur hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála í Húnaþingi vestra. Helga Guðrún formaður UMFÍ veitti Jónínu Sigurðardóttur og Kristínu Jóhannesdóttur starfsmerki UMFÍ fyrir störf þeirra í þágu ungmennahreyfingarinnar en þær hafa verið í ritnefnd Húna í tæp 20 ár.

Á heimasíðu UMFÍ segir að í skýrslu stjórnar hafi mátt lesa um kraftmikið og gott starf sambandsins m.a. var kafli í skýrslunni um 1. Landsmót 50+ sem haldið var á Hvammstanga í júní 2011 og einnig lá frammi á þinginu skýrsla um mótið sem þingfulltrúar gátu skoðað. Reikningar sambandsins sýna góðan rekstur og  fjárhagslega stöðu sambandsins og er uppsetning reikningsins til mikillar fyrirmyndar. Fram kom hjá þingfulltrúum ánægja með hvern til tókst með framkvæmdina á 1. Landsmóti 50+ og spillti fyrir að mótið skilaði jákvæðri niðurstöðu fjárhagslega.

Litlar breytingar urðu á stjórn en Oddur Sigurðarson tók sæti ritara í stað Magnúsar Jónssonar og Halldór Sigfússon og Vigdís Gunnarsdóttir komu ný inn í varastjórn í stað Odds og Guðbjargar Ingu Guðmundsdóttur. Þá var Guðmundur Haukur Sigurðsson endurkjörinn sem formaður.

Samþykktir þingsins voru breytt reglugerð um úthlutun USVH til aðildarfélaganna, breytt reglugerð um Héraðsþing USVH og einnig var samþykkt að færa Húnaþingi vestra og UMFÍ þakkir fyrir samstarf við 1. landsmót 50+ sem haldið var á Hvammstanga síðastliðið sumar.

Fleiri fréttir