Guðrún Þóra ráðin forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála

Guðrún Þóra Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála.
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála.

Í fréttatilkynningu frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála, sem staðsett er á Akureyri, segir að miðstöðin bjóði nýjan forstöðumann, Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur, velkomna til starfa, en hún hefur verið ráðin í starfið frá 15 maí. Guðrún er nú lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum og hefur starfað við skólann um árabil.

Guðrún Þóra hefur aflað sér víðtækrar reynslu og þekkingar á ferðamálum undanfarin 20 ár. Hún er með meistaragráðu (M.B.A.) í stjórnun ferðaþjónustu frá University of Guelph, Ontario í Kanada og meistaragráðu frá University of Oregon, USA í samanburðarbókmenntum. Hún leiddi uppbyggingu ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og var deildarstjóri þar í 13 ár.

Hún hefur síðustu sjö árin gegnt starfi lektors við sömu deild. Guðrún Þóra sat sex ár í Vísinda- og tækniráði og var um árabil fulltrúi Íslands í Norrænu Atlantshafsnefndinni (NORA). Guðrún Þóra mun sinna starfi forstöðumanns í fullu starfi frá 15. maí næstkomandi en í hlutastarfi þangað til.

Fráfarandi forstöðumaður, Kristín Sóley Björnsdóttir, mun sinna starfinu til 1. apríl og í kjölfarið taka við starfi kynningarstjóra hjá Menningarfélagi Akureyrar. Rannsóknamiðstöð ferðamála þakkar Kristínu Sóleyju fyrir afar vel unnin störf og óskar henni alls hins besta á nýjum vettvangi.

Fleiri fréttir