Hafnarbakkinn – Nýtt lag með Contalgen Funeral
Hljómsveitin Contalgen Funeral hefur gert það gott undanfarin ár og spilað út um allar koppagrundir og heillað áheyrendur og ekki síður áhorfendur upp úr skónum. Sveitin hefur lítið notað móðurmálið í sínum lögum en nú er komið út nýtt lag á íslensku með hljómsveitinni og nefnist það Hafnarbakkinn.
Gísli Þór með rafmagnsbassann á Rósenberg. Mynd: Ísabella Leifsdóttir
Næstu helgi er bandið að spila á Dillon í Reykjavík og meðal hátíða sem það kemur fram á í sumar eru Síldarævintýrið á Siglufirði og Gæran.
HÉR má heyra fyrsta lagið sem Contalgen Funeral gefur út á íslensku.