Hagnaður í Húnaþingi

Ársreikningur sveitarsjóðs Húnaþings vestra og fyrirtækja fyrir árið 2012 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar þann 14. maí sl. Í ársreikningnum kemur m.a. fram að afgangur frá rekstri samstæðu A- og B-hluta sé samtals 51,2 millj. kr. samanborið við neikvæða afkomu ársins 2011 að fjárhæð kr. 69,7 millj. 

Niðurstaða aðalsjóðs er jákvæð um kr. 64,2 millj. en hafði verið áætluð jákvæð um 34,1 millj. kr. Niðurstaða samstæðu A og B hluta er sem áður segir jákvæð um kr. 51,2 millj. en hafði verið áætluð jákvæð um 17,9 millj. kr. Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er kr. 106,3 millj.

Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur hjá A- og B hluta námu alls kr. 39,5 millj. Leiðrétting lána og niðurfærsla eignahluta var jákvæð um kr. 30,5 millj. sem er vegna endurgreiðslu og niðurfellingar láns hjá Landsbankanum hf. Þess skal getið að alls 15 millj. kr. af þeirri endurgreiðslu var varið til fjölbreyttra samfélagslegra verkefna innan sveitarfélagsins.
Rekstrartekjur voru um 29,4 millj. kr. hærri en ráð var fyrir gert, útsvar er 9,6 millj. kr. hærri en í áætlun og aðrar tekjur kr. 19,8 millj. hærri, en rekstargjöld voru samkvæmt áætlun ársins. Sé litið til niðurstöðu ársreiknings ársins 2012 hafa markmið sveitarstjórnar Húnaþings vestra um bætta fjármálastjórn náðst og má í því samhengi nefna að engin ný lán voru tekin á árinu 2012 og ekki er gert ráð fyrir nýjum lántökum á árinu 2013.

Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins á árinu 2012 eru alls kr. 818,5 millj. og hafa þær lækkað frá árinu 2011 um kr. 60,4 millj. Lífeyrisskuldbindingar nema í árslok 2012 kr. 91,6 millj. Eigið fé samstæðunnar í árslok 2012 nam kr. 710 millj. Handbært fé í árslok 2012 var kr. 118,5 millj. en var í upphafi árs kr. 114,3 millj.

Fjárfestingar ársins 2012 voru kr. 42 millj. Veltufjárhlutfall samstæðunnar er 1,27. Samkvæmt viðmiði Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga hefur nefndin afskipti af þeim sveitarfélögum þar sem hlutfall skulda og skuldbindinga af samanlögðum tekjum A- og B hluta er umfram 150%. Í Húnaþingi vestra er þetta hlutfall 75,8% skv. ársreikningi 2012 en var 84,8% á árinu 2011.
Þann 1. janúar 2012 sameinuðust Húnaþing vestra og Bæjarhreppur í eitt sveitarfélag. Ljóst að að sameining sveitarfélaganna hefur skilað verulegri rekstrarhagræðingu og skýrir það að hluta þann góða árangur sem staðfestur er í ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2012.

Þrátt fyrir ánægjulega niðurstöðu ársreiknings Húnaþings vestra fyrir árið 2012 er ástæða til að vara við mögulegum áhrifum ytri þátta á framtíðarrekstur sveitarfélagsins. Þar skal sérstaklega nefna verðbólgu- og launaþróun og vaxtastig en þá þætti þarf sveitarstjórn m.a. að hafa í huga varðandi ákvarðanatöku um rekstur og fjárfestingar á næstu árum.
Hvammstangi 15. maí 2013
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir