Hálendisvakt 2013

Um þessar mundir sinna björgunarsveitir úr Skagafirði hálendisgæslu á Fjallabaki. 10 félagar úr Skagfirðingasveit og Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð stóðu vaktina í síðustu viku og höfðu aðsetur í Landmannalaugum. Björgunarsveitirnar voru á tveimur öflugum jeppum og einum sem útbúinn er til sjúkraflutninga enda eru verkefnin fjölmörg, allt frá  leiðbeiningum, björgunum úr ám, slysum, sjúkraflutningum auk annara verkefna.

Að sögn Hilmars Baldurssonar, hjá Flugbjörgunarsveit Varmahlíðar, var veðrið gott í síðustu viku og allt gekk vel, en þó var veðrið á aðfaranótt laugardagsins ekki jafn gott. Næsta sveit tók við í gær, sunnudaginn 7. júlí og héldu þá Skagfirðingar aftur í fjörðinn fagra.

 

Fleiri fréttir