Hannað og framleitt á staðnum

Prjónastofan Kidka á Hvammstanga er nýlegt fyrirtæki á gömlum grunni og er staðsett í iðnaðarhverfi sunnarlega í þorpinu. Þar eru framleiddar fjölbreyttar vörur úr vélprjónaðri ull, bæði fyrir innlendan markað og til útflutnings.

Ferðamannaverslun er á staðnum og eru renndar hettupeysur ein vinsælasta framleiðsluvara fyrirtækisins. Blaðamaður Feykis heimsótti Kidka á björtum maídegi og fékk að valsa um verksmiðjuna og kynna sér starfsemina.

Í verslun Kidka má finna fjölbreytt úrval, t.a.m. peysur og teppi. Reglulega er nýjum vörum bætt við framboðið. „Maður hendir ekki út því sem er að seljast en við reynum að vera með nýjungar,“ segir Kristinn Karlsson hjá Kidka m.a. í viðtali í 22. tölublaði Feykis sem út kom í dag.

Fleiri fréttir