Hátíðarhöld á Hvammstanga á sumardaginn fyrsta

Á Norðanátt.is segir frá því að hátíðarhöld á Hvammstanga á sumardaginn fyrsta eigi sér sögu allt frá árinu 1957. Upphaflega var stofnað til hátíðarhalda á staðnum þennan dag af Fegrunarfélaginu, en það félag stóð fyrir gróðursetningu og byggði upp garðinn við sjúkrahúsið á Hvammstanga.

Það er Ingibjörg Pálsdóttir, ein af stofnendum og félagsmönnum Fegrunarfélagsins, sem stendur fyrir hátíðahöldunum í ár, skv. Norðanátt.is. Hefst dagskráin kl. 14:00 með skrúðgöngu frá félagsheimilinu á Hvammstanga, með viðkomu við sjúkrahúsið. Að skrúðgöngu lokinni hefst hefðbundin dagskrá í félagsheimilinu þar sem Veturkonungur afhendir Sumardísinni völdin. Því næst verða nokkrar umferðir af bingó spilaðar í boði fyrirtækja í Húnaþingi vestra.

Sumarkaffi Landsbankans á Hvammstanga er á sínum stað fyrir íbúa Húnaþings vestra og gesti og gangandi. Kaffið verður í félagsheimilinu á Hvammstanga og hefst er skrúðgöngunni lýkur. Áætlað er að sumarkaffinu ljúki kl. 17:00.

Fleiri fréttir