Haukar sigruðu Stólana í Hafnarfirði

Haukar í Hafnarfirði fengu Tindastól í heimsókn í 21. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í gærdag. Stólarnir hafa að litlu að spila fyrir utan stoltið og að bæta stigafjöldann frá í fyrrasumar. Haukarnir eru hins vegar í baráttunni um sæti í Pepsi-deildinni. Eftir markalausan fyrri hálfleik voru heimamenn duglegri en Stólarnir við markaskorunina í þeim síðari og sigruðu 3-1.

Fannar Kolbeins og Ingvi Hrannar voru mættir til leiks á ný en þeir voru fjarri góðu gamni í leiknum á undan. Árni Arnarson var hins vegar í banni. Haukarnir voru mun betri í fyrri hálfleik enda höfðu Stólarnir lagt upp með að verjast aftarlega og beita síðan skyndisóknum. Þær sóknir enduðu flestar afar skyndilega því Stólarnir voru snöggir að missa boltann. Heimamenn voru á móti skotglaðir en þau skot sem rötuðu á markið voru varin af besta manni Tindastóls í gær, Seb Furness. Staðan 0-0 í hálfleik.

Tindastólsmenn komu líflegri til leiks í síðari hálfleik og bæði lið áttu nokkra ágæta sénsa á fyrstu 10 mínútunum, Fyrsta mark leiksins gerði Hafsteinn Briem á 54. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf af vinstri kanti en Stólarnir vildu meina að hann hefði brotið á varnarmanni Tindastóls áður en hann skallaði í markið. Stuttu síðar bætti Hilmar Geir Eiðsson við öðru marki Hauka. Ekki voru Stólarnir þó á þeim buxunum að gefast upp og á 68. mínútu gerði Chris Tsonis laglegt mark, náði að snúa á vítateigslínunni og senda þéttingsfast skot í fjærhornið. Það voru þó heimamenn sem reyndust sterkari á lokakaflanum og fengu betri færin. Þeir unnu boltann á eigin vallarhelmingi og geystust í sókn á 84. mínútu og Anthonio De Souza komst inn fyrir vörn Stólanna og renndi boltanum framhjá Furness í markinu. Lokatölur 3-1.

Úrslitin voru í heildina sanngjörn í gær en heimamenn skópu sér fleiri færi í leiknum og þá höfðu þeir talsverða yfirburði í fyrri hálfleik sem þeim tókst þó ekki að nýta sér. Síðasta umferðin í 1. deild fer fram um næstu helgi. Ljóst er að KF og Völsungur falla niður um deild en þau fengu samtals á sig 23 mörk í gær en skoruðu ekkert. Toppslagurinn er æsispennandi en fimm lið eiga möguleika á að tryggja sér sæti í efstu deild; Fjölnir (40 stig), Víkingur R., Grindavik og Haukar (39 stig) og loks BÍ/Bolungarvík (37 stig) en það eru einmitt Djúpmenn sem mæta á Krókinn um næstu helgi með þá veiku von í brjósti að komast í efstu deild.

Fleiri fréttir