Heimildamynd um Bjarna Har sýnd í Króksbíó

„Búðin“, heimildamynd Árna Gunnarssonar kvikmyndagerðarmanns um hinn kunna kaupmann á Sauðárkróki, Bjarna Har, var frumsýnd á RIFF kvikmyndahátíðinni á laugardaginn var, auk þess sem hún var sýnd í Króksbíó á sunnudaginn. Næsta sýning á Sauðárkróki er áformuð næstkomandi mánudag, 7. október, kl 20:00.

Að sögn Báru Jónsdóttur hjá Króksbíó voru um 50 gestir á sýningunni á sunnudaginn. „Fólk var mjög ánægt með myndina og var mikið klappað í lokin.

Í samtali við Feyki í síðustu viku sagði Árni myndina hafa verið í vinnslu í fjögur ár og kvaðst hann ánægður með útkomuna, enda um skemmtilegt myndefni að ræða. Í kynningartexta um myndina segir: Sá sem kemur inn í Verslun H. Júlíussonar á Sauðárkróki ferðast í huganum áratugi aftur í tímann. Í „Búðinni“ kynnumst við Bjarna og Dísu konu hans, fjölskyldu þeirra og vinum. Bjarni leiðir okkur aftur til tíðarandans þegar fólk gaf sér tíma fyrir náungann, hjálpaðist að og hlustaði ef einhverjum lá eitthvað á hjarta.“

Fleiri fréttir