Heimir æfir fyrir þrettándagleði

Æfingar fyrir þrettándagleði karlakórsins Heimis eru í fullum gangi, og ágæt mynd að komast á flest lögin á dagskránni. Ekki veitir af, segir á heimasíðu kórsins, enda líður tíminn hratt og jól og áramót innan seilingar.

Kórinn hefur fengið til liðs við sig hinn kunna tenórsöngvara Garðar Thor Cortes. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá, óperuaríur og sígild kórverk, íslensk og erlend. Að venju verður svo dansleikur eftir tónleikana, sem verða haldnir laugardaginn 4. janúar 2013.

Fleiri fréttir