Helga Margrét segir skilið við þjálfara sinn

Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkona úr Ármanni hefur slitið samstarfi sínu við sænska þjálfarann Agne Bergvall sem staðið hefur yfir í rúmlega eitt og hálft ár. Ástæðan fyrir þessu er sú að samstarfið hefur ekki skilað þeim árangri, framförum eða bætingum sem Helga Margrét hafði væntingar til.

Helga er því komin heim til Íslands og mun hennar fyrsti þjálfari Guðmundur Hólmar Jónsson þjálfa hana auk þess sem Vésteinn Hafsteinsson mun halda áfram samvinnunni við Helgu. Þeirra verkefni er nú fyrst og fremst að aðstoða Helgu við að ná lágmörkum á Evrópumeistaramótið í Helsinki og Ólympíuleikana í London í sumar.

Fleiri fréttir