Helga Þórsdóttir best kvenna hjá Þór

Á lokahófi körfuknattleiksdeildar Þórs á Akureyri sem haldið var sl. föstudagskvöld voru Skagfirðingar sigursælir í viðurkenningum hjá konunum en leikmenn beggja meistaraflokka voru veitt hin ýmsu verðlaun eftir veturinn.

Dugnaðarforkurinn í kvennaboltanum var valin Kristín Halla Eiríksdóttir; besti varnarmaður, Rakel Rós Ágústsdóttir og Helga Þórsdóttir var valin besti leikmaðurinn, allt skagfirskar stúlkur. Þá hlaut Gréta Ottósdóttir viðurkenningu fyrir mestu framfarir.

Fleiri fréttir