Héraðsmót USVH 2013 í frjálsum íþróttum
Mánudaginn 29. júlí fer Héraðsmót í frjálsum íþróttum fram á Kollsárvelli. Keppni hefst klukkan 18:00 og er áætlað að henni ljúki um klukkan 22:00 sama dag.
Tekið er á móti skráningum með tölvupósti á netfangið usvh@usvh.is. Koma skal fram nafn og kennitala keppanda og í hvaða greinum keppandinn ætlar að keppa í. Skráningum þarf að vera lokið eigi síðar en kl. 21:00 sunnudaginn 28. júlí 2013. Mikilvægt er að fá skráningar á réttum tíma til að hægt sé að átta sig á umfangi mótsins og undirbúningur gangi sem best.
Nú er um að gera fyrir íbúa héraðsins að taka fram frjálsíþróttaskóna, reima þá á fæturna og taka þátt í skemmtilegri keppni með góðu fólki, þar sem markmiðið er að skemmta sér og öðrum á uppbyggilegan hátt.
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum og greinum:
9 ára og yngri, hnátur og hnokkar;
boltakast, langstökk, 60 metra og 200 metra hlaup.
10-11 ára, hnátur og hnokkar;
kúluvarp, langstökk, 60 metra og 400 metra hlaup.
12-13 ára, strákar og stelpur;
hástökk, kúluvarp, langstökk, 100 metra, 800 metra hlaup og 4x100 metra boðhlaup.
14-15 ára, piltar og telpur;
spjótkast, hástökk kúluvarp, langstökk, 100 metra og 800 metra hlaup og 4x100 metra boðhlaup.
Konur 16 ára og eldri;
kringlukast, spjótkast, hástökk, langstökk, kúluvarp, 100 metra og 800 metra hlaup og 4x100 metra boðhlaup.
Karlar 16 ára og eldri;
kringlukast, spjótkast, hástökk, langstökk, kúluvarp, 100 metra og 1500 m hlaup og 4x100 metra boðhlaup.
Grein fellur niður ef ekki eru að lágmarki 3 keppendur skráðir í greinina, einnig er minnt á að hver keppandi má ekki keppa í fleiri en 5 greinum.
Ef þið ætlið ekki að keppa þá vantar alltaf aðstoð við tímatöku, mælingar og ýmis önnur störf. Ef þið getið lagt okkur lið látið Önnu Maríu vita í síma 897 9300. Norðanátt.is segir frá þessu.