Héraðsvötn í verndarflokk í drögum að lokaskýrslu

Héraðsvötn fara í verndarflokk samkvæmt drögum að lokaskýrslu 3ja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar. Mynd: BÞ
Héraðsvötn fara í verndarflokk samkvæmt drögum að lokaskýrslu 3ja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar. Mynd: BÞ

Verkefnisstjórn rammaáætlunar hefur lagt fram drög að lokaskýrslu 3ja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar. Í skýrslunni er gerð tillaga um flokkun 25 virkjunarkosta og svæða.

Verkefnisstjórn leggur til að eftirfarandi kostir fari í orkunýtingarflokk: Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun, Austurengjar, Hverahlíð II, Þverárdalur og Blöndulundur. Í verndarflokk fari fjögur svæði með eftirtöldum virkjunarkostum: Héraðsvötn (Villinganesvirkjun, Skatastaðavirkjanir C og D), Skjálfandafljót (Fljótshnúksvirkjun og Hrafnabjargavirkjanir A, B og C), Skaftá (Búlandsvirkjun) og Þjórsá vestur (Kjalölduveita).

Í biðflokk fari tveir virkjunarkostir í Hólmsá (við Atley og án miðlunar), Búðartunguvirkjun, Hagavatnsvirkjun, Stóra-Laxá, Trölladyngja, Innstidalur, Hágönguvirkjun, Fremrinámar og Búrfellslundur. Ekki lágu fyrir nægileg gögn til að meta Austurgilsvirkjun á Vestfjörðum og fer sá kostur því einnig í biðflokk.

Frá þessu er sagt í fréttatilkynningu frá Rammaáætlun, en ítarlegri upplýsingar og greinargerðir faghópa má finna í skýrslu verkefnisstjórnar.

Fleiri fréttir