Hestamaður í Húnaþingi á leið á HM
James Faulkner, meðlimur í hestamannafélaginu Þyt í Húnaþingi vestra og tamningamaður á Gauksmýri, gerði sér lítið fyrir og flaug til Bretlands til að keppa á breska meistaramótinu í hestaíþróttum. Fékk hann hestinn Brimar frá Margrétarhofi lánaðan í verkefnið en hann flutti í vetur til Noregs eftir að hafa verið í þjálfun hjá James. Náðu þeir félagar þeim frábæra árangri að sigra töltið og verða í 2.sæti í fjórgangi og þar með hlutu þeir farseðil inn á HM í Berlín sem fram fer nú í ágúst. Frá þessu er sagt á heimasíðu hrossaræktarbúsins Lækjarmóts í Víðidal.