Hestamannafélagið Léttfeti fagnar 80 ára afmæli
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
21.11.2013
kl. 08.19
Hestamannafélagið Léttfeti varð 80 ára þann 13. apríl síðastliðinn og ætlar í tilefni af því að bjóða til afmælisfagnaðar næstkomandi laugardagskvöld í Tjarnarbæ. Að sögn Sigfúsar Snorrasonar formanns skemmtinefndar verður boðið upp á kaffi og kökur og létta dagskrá og hvetur hann félagsmenn til að fjölmenna og skemmta sér saman.
Húsið opnar 19:30 en dagskrá hefst klukkan 20:00.