Hestamanns leitað í nótt
Skagfirðingasveit Landsbjargar var kölluð út til leitar í nótt en hestamenn voru á leið upp í Þúfnavelli en villtust í svartaþoku. Ákváðu þeir þá að ríða aftur til byggða en vildi ekki betur til en svo að einn hestamannanna varð viðskila við hópinn.
Sá var með þrjá til reiðar og tók ákvörðun þegar hann var orðinn villtur um að láta hestana um að rata. Hestarnir fóru með manninn upp að Þúfnavöllum þar sem hann var kominn og hafði lagt sig þegar björgunarsveitarmenn bar þar að enda hafði hann ekki hugmynd um að hans væri leitað. „Hann átti ekki von á okkur maðurinn og var því þarna bara í rólegheitum,“ sagði Valdimar Pétursson hjá Skagfirðingasveit.