Hin besta stemning á Húnavöku

Nú ættu síðustu mínútur Húnavöku 2011 að fara að renna sitt skeið á enda. Ljósmyndarar á vegum Feykis voru á Blönduósi í gær og tóku myndir af fjölskylduskemmtun á Bæjartorginu, keppni í Míkróhúninum og ýmsu fleiru sem fyrir augu bar.

Nöpur norðanátt var á Blönduósi um miðjan dag í gær en ekki virtust heimamenn og gestir láta það aftra sér frá því að skemmta sér hið besta.

Hér má sjá nokkrar myndir sem Hinir sömu náðu að safna inn á minniskort á Húnavökunni.

Fleiri fréttir