Hitaveita að Gauksmýri - vinnuútboð
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
14.05.2014
kl. 10.26
Á vef Húnaþings vestra óskar hitaveita Húnaþings-v eftir tilboðum við lagningu hitaveitu að Gauksmýri. Um er að ræða lögn á 4,9 km af foreinangraðri stálpípu DN 100 sem er lögð í skurð frá Litla-Ósi að Gauksmýri, plægingu og lögn á 1,3 km af foreinangruðum plaströrum 25-50 mm og tengingar við 8 hús. Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2014.
Útboðsgögn verða afhent hjá Stoð ehf. verkfræðistofu Aðalgötu 21 Sauðárkróki og á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga frá og með fimmtudeginum 15. maí.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5 Hvammstanga kl. 11.00 þriðjudaginn 3. júní 2014.