Hitaveituframkvæmdir í Húnaþingi vestra í útboði

Hitaveituframkvæmdir í Húnaþingi vestra hafa verið boðnar út. Um er að ræða lagningu hitaveitu í Miðfirði og Hrútafirði, sem samanstendur af 17,5 km stállögnum og 32,3 km af plaströrum og tengingu við um 40 hús. Verkingu skal lokið fyrir 31. október 2015.

Útboðsgögn eru afhent hjá Stoð ehf. verkfræðistofu við Aðalgötu 21  á Sauðárkróki frá og með mánudeginum 30. mars nk. og verða tilboðin opnuð á skrifstofu Húnaþings vestra á Hvammstangabraut 5 Hvammstanga kl. 11:00 þriðjudaginn 21. apríl nk. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 31. október 2015.

Fleiri fréttir