„Hjálmur er höfuð nauðsyn“ - FeykirTV
feykir.is
Skagafjörður
02.05.2014
kl. 13.35
Gleði skein úr andlitum nemenda 1. bekkjar í Skagafirði þegar Kiwanisklúbbnum Drangey afhendi þeim reiðhjólahjálma fyrir utan Árskóla á Sauðárkróki í blíðskaparveðri í gær. Um er að ræða árlegt verkefni hjá klúbbnum.
„Hjálmur er höfuð nauðsyn,“ sagði Ólafur Jónsson frá Kiwanisklúbbnum Drangey við afhendinguna en einnig kom Stefán Vagn Stefánsson lögreglustjóri og brýndi fyrir börnunum mikilvægi þess að muna eftir hjálminum.
Loks bauð Kiwanisklúbburinn upp á grillaðar pylsur og svala.
http://youtu.be/9HPueEBsjYs