Hjördís í 9. sæti á Battle of London mótinu

Hjördís Ósk Óskarsdóttir hreppti 9. sætinu á Battle of London mótinu í CrossFit í Englandi um sl. helgi en þar keppti hún í einstaklingskeppni. Samkvæmt Norðanátt.is var markmið Hjördísar fyrir mótið að vera á meðal 10 efstu.   

Á laugardeginum fóru WOD 1, WOD 2A, WOD 2B og WOD 3 fram. Árangur Hjördísar í einstaka WOD-um var eftirfarandi:
WOD 1 - 21. sæti á tímanum 06:17.
WOD 2A - 3. sæti með 90 stig.
WOD 2B - 16. sæti á tímanum 04:10.
WOD 3 - 12. sæti á tímanum 07:59.
Eftir fyrri keppnisdag var Hjördís í 9. sæti með 51 stig.

Á sunnudeginum fóru WOD 4A, WOD 4B, WOD 5, WOD 6 og WOD 7 fram. Í síðustu WOD-unum var skorið niður og voru því aðeins 10 efstu sem komust í WOD 7. Árangur Hjördísar í einstaka WOD-um var eftirfarandi:
WOD 4A - 10. sæti með 70 stig.
WOD 4B - 9. sæti með 19 stig.
WOD 5 - 16. sæti með 128 stig.
WOD 6 - 4. sæti með 323 stig.
WOD 7 - 5. sæti á tímanum 09:52.

Samanlagt náði Hjördís 9. sæti í keppninni með 100 stig og náði því markmiði sínu. Úrslit er að finna á vef mótsins, battleoflondon.com. Einnig má skoða myndbönd frá keppninni á YouTube síðu mótsins og má sjá glitta í Hjördísi í myndbandi af WOD 6 í einstaklingskeppni kvenna. .

Um næstu helgi tekur Hjördís svo þátt í alþjóðlegu móti í ólympískum lyftingum í tengslum við RIG, Reykjavik International Games (Reykjavíkurleikana) og fer hún fram laugardaginn 25. janúar í Reykjavík.

Fleiri fréttir