Hleypur í skarðið skömmu fyrir frumsýningu

Einn af leikurum í Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks, Rjúkandi ráð slasaðist á dögunum og er líklega með slitinn liðþófa í hné og varð því að hætta við hlutverk sitt í leikritinu.

Sá óheppni var Ragnar Heiðar Ólafsson, sem átti að fara með hlutverk Ólafs Jónssonar lögregluþjóns. Var hvíslarinn, Már Nikulás Ágústsson,fenginn til að hlaupa í skarðið og ellefu dögum fyrir frumsýningu var hann á sinni annarri æfingu. Það sem ekki er minna afrek er að þetta er í fyrsta sinn sem hann stígur á svið fyrir utan grunnskólaleikrit.

Samkvæmt upplýsingum frá Leikfélaginu hefur hann notað hverja mínútu og legið yfir textanum sínum og var nánast kominn með hann nú um páskana. Það verður því spennandi að sjá hann og aðra leikara í hlutverkum sínum, en verkið verður frumsýnt næstkomandi sunnudag kl. 20:00 í Bifröst.

Fleiri fréttir