Hnakkakynning á Narfastöðum

Það er alltaf eitthvað að gerast í sveitinni dagana í kringum Laufskálarétt og ætla bændurnir á Narfastöðum ekki að láta sitt eftir liggja. Föstudaginn 27. september verður kynning á vörum frá Tolthester Island í hesthúsinu á Narfastöðum frá kl 16:00 - 18:00.

Tolthester merkið er nýtt á Íslandi og hefur svo sannarlega slegið í gegn í Evrópu. Þarna eru á ferðinni gæðavörur á góðu verði. Allir eru boðnir velkomnir að prófa hnakkana þeirra og verða léttar veitingar í boðið.

Fleiri fréttir