Höfrungur í fjörunni við Sauðárkrók

Hræið af hvalnum liggur við fjölfarna gönguleið í fjörunni við Sauðárkrók. Mynd: PF.
Hræið af hvalnum liggur við fjölfarna gönguleið í fjörunni við Sauðárkrók. Mynd: PF.

Mikið hefur verið um hvala- og hvalrekafréttir á árinu svo ætla má að fjölgun sé hjá þeim spendýrum við Íslandsstrendur. Við fjölfarna gönguleið í fjörunni við Sauðárkrók liggur nú hræ af höfrungi sem rekið hefur á land í norðanáttinni á dögunum. Líklega er hér um stökkul að ræða sem er meðalstór tannhvalur og er ein af tveimur tegundum í ættkvíslinni Tursiops. Þeir eru hluti af ættinni Delphinidae og eru meðal algengustu höfrunga á hafsvæðinu við sunnanvert Ísland.

Af um 30 tegundum núlifandi höfrunga finnast að jafnaði sex hér við land. Mynd: PF

Af um 30 tegundum núlifandi höfrunga finnast að jafnaði sex hér við land. Mynd: PF

Á WikiPedia kemur fram að stökklar séu sennilegast þekktasta höfrungategundin og sú sem líffræðingar hafa rannsakað mest. Hvalurinn er grár á lit og er dekkri á baki en á kvið en litaskil ekki skörp. Hann er gildvaxinn og hefur breiðari haus og skrokk en flestar tegundir höfrunga. Trýnið er stutt og afmarkað frá kúptu enninu. Hornið er miðsvæðis á bakinu og er fremur stórt og eins eru bægslin hlutfallslega stór og aftursveigð. Munur er á stærð fullvaxinna dýra, tarfarnir eru ívið lengri en kýrnar, um 2,5 og allt að 4,1 metra en kýrnar 2,4 til 3,7 en talsvert gildvaxnari og þyngri.

Uppfært: Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknarstofnun reyndist hvalhræið vera af andarnefju. Sjá HÉR.

Fleiri fréttir