Höfundur Ljósmóðurinnar heimsækir Hvammstanga

Sögufélagið Húnvetningur og Héraðsbókasafn Vestur-Húnavatnssýslu efna til fundar með Eyrúnu Ingadóttur sagnfræðingi, í Héraðsbókasafninu á Hvammstanga laugardaginn 16. nóvember næstkomandi klukkan 15:30. Frá þessu er greint á Húnahorninu.is.

Eyrún er höfundur heimildaskáldsögunnar Ljósmóðirin en hún er um Þórdísi Símonardóttur sem var ljósmóðir á Eyrarbakka á umbrotsárunum fyrir og eftir aldamótin 1900.

Þórdís tók þátt í þróttmiklu stúkustarfi þar á Bakkanum, samkomuhús var byggt yfir starfsemina og „fljótlega eftir vígslu hússins var samþykkt að stúkan myndi einbeita sér að því að safna peningum fyrir byggingu kirkju á Eyrarbakka. Það reyndist afdrifaríkt því 30 manns gengu í stúkuna til viðbótar á næsta fundi, þar á meðal faktor Nielsen og frúin úr Húsinu. Sigurganga Eyrarrósarinnar nr. 1 virtist engan endi ætla að taka.“

Tvívegis fann Þórdís ástina og tvívegis glataði hún henni. Hún barðist gegn yfirgangi og kúgun valdsmanna sem beittu öllum ráðum til að beygja hana niður í duftið. Hún gafst aldrei upp, reis á fætur þegar hún var snúin niður og glataði aldrei trúnni á hugsjónir sínar.

Allir hjartanlega velkomnir  á fundinn og kaffivélin er í góðu lagi.

Fleiri fréttir