Hólaskóli hlaut tvo styrki frá Rannís

Hólaskóli hlaut tvo styrki frá Rannsóknasjóði Rannís sem úthlutaðir voru nýverið til nýrra rannsóknarverkefna fyrir árið 2012. Báðir styrkirnir bjóða upp á framhaldsumsóknir til allt að þriggja ára og fáist styrkur öll árin er heildarstyrktarupphæð hvors styrks fyrir sig um 20 milljónir.

Samkvæmt heimasíðu Hólaskóla var samkeppnin hörð en af 267 umsóknum fengu eingöngu 47 styrk, eða 17,7%. Flestar umsóknir koma frá stóru háskólunum, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík, og til þeirra fara flestir styrkir. Aðrir háskólar fengu að þessu sinni fjóra styrki og sem fyrr segir koma tveir þeirra í hlut Háskólans á Hólum.

Annað verkefnið sem hlaut styrkinn kallast Dægursveiflur í virkni bleikju í íslenskum ám en verkefnisstjóri er Stefán Óli Steingrímsson. Auk Stefáns eru þátttakendur þeir Sveinn Kári Valdimarsson (Náttúrustofu Reykjaness), James W. Grant (Concordia University, Kanada), Richard A. Cunjack og Tomi Linnansaari (báðir frá University of New Brunswick, Kanada).

Hitt verkefnið kallast Mikilvægi vistfræðilegra þátta, svipgerðar og erfða fyrir líffræðilega fjölbreytni hjá hellableikju á Íslandi. Verkefnisstjóri er Skúli Skúlason en aðrir þátttakendur eru Bjarni K. Kristjánsson (Háskólanum á Hólum), Sigurður S. Snorrason (Háskóla Íslands), Moira M. Ferguson (University of Guelph, Kanada), Michael Morrissey (University of Massachusetts), Árni Einarsson (Náttúrurannsóknarstöðinni við Mývatn) og Katja Räsänen (EAWAG, Sviss).

Yfirlit yfir úthlutanir úr Rannsóknasjóðnum að þessu sinni má nálgast hér.

Fleiri fréttir