Hönnunarsamkeppni fyrir „Gæði úr Húnaþingi“ – skilafrestur til 15. mars

Samstarfshópur um „Gæði úr Húnaþingi“ undir forystu Spes sveitarmarkaðar í Húnaþingi vestra stendur fyrir opinni hönnunarsamkeppni um kennimerki (lógó) og lýsir eftir tillögum. Skilafrestur tillagna um kennimerki („lógó“) fyrir „Gæði úr Húnaþingi – local quality“ rennur út 15. mars nk.

Kennimerkið skal vera einkennandi fyrir framleiðslu sem unnin er að mestu leiti í höndunum og byggir að nokkru leiti á hráefni svæðisins. Hér er aðallega átt við handverk, hönnun og matvælaframleiðslu. Einnig koma þjónustustaðir í ferðaþjónustu að verkefninu. Sjá nánar hér eða á facebook-síðu verkefnisins. Þar er að finna nánari upplýsingar um framkvæmd samkeppninnar, um kynningu tillagna, verðlaun fyrir bestu tillögurnar, o.fl.

Einnig er hægt að hafa samband við Gudrunu Kloes hjá SSNV atvinnuþróun á Hvammstanga, í síma 455 2515 eða 898 5154.

Fleiri fréttir