Hraðatakmarkanir taka gildi í dag
Hraðatakmarkanir á Sauðárkróki, sem greint var frá á Feyki.is fyrir skemmstu, taka gildi í dag. „Með lækkun hámarkshraða í íbúahverfum er stuðlað að auknu öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, ekki síst barna og unglinga sem oft eru að leik í íbúagötum eins og við verðum svo greinilega vör við nú þegar vora tekur.“
Eins og fram kom í fréttinni voru tillögur að hraðatakmörkunum ræddar á fundum umhverfis- og samgöngunefndar en einnig var leitað eftir umsögn frá lögreglunni á Sauðárkróki.
Endanleg útfærsla á hraðatakmörkunum er sýnd á meðfylgjandi teikningu. Þar sést að hámarkshraði er lækkaður niður í 35km/klst í íbúahverfum en stofnbrautir innan bæjarmarka halda hámarkshraða 50km/klst.