Hrefna á batavegi
Í júlí sl. breyttist lífið hjá Hrefnu Samúelsdóttur og fjölskyldu hennar þegar hún var flutt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa misst meðvitund. Á vef Norðarnáttar er sagt frá því að í ljós komu þrír blóðtappar, tveir nálægt litla heila og einn við sjóntaugina. Hálsæðin að aftan var stífluð og svo fór blóðrennsli af stað og upp í heila. Auk þess fékk Hrefna lungnabólgu vegna lyfja.
Hrefna og Sigurður Björn Gunnlaugsson eiga þrjá unga syni og var sett af stað söfnun fyrir fjölskylduna til að létta undir með þeim í þessari stöðu upp er komin.
Eydís Ósk Indriðadóttir stendur fyrir söfnuninni og sagði hún í samtali við Norðanátt að mesta hættan væri liðin hjá og bataferlið væri því að hefjast.
-Hreyfigeta Hrefnu er skert og þarf hún að notast við göngugrind þar sem hún er ekki fær um að ganga sjálf. Læknarnir telja að það muni þó lagast með tímanum. Auk þess glímir Hrefna við mikinn svima og ógleði, segir Eydís í samtalinu, en hún segir mikinn mun vera á stöðunni milli daga.
-Nú bíður Hrefna eftir því að komast í endurhæfingu á endurhæfingardeildar Landspítala á Grensási í Reykjavík. Það stóð til að hún kæmist á Grensás í síðustu viku en einhver bið verður á því þar sem ástandið er búið að vera óstöðugt undanfarið. Það er því ljóst að langt og strangt ferli er framundan og er margt sem þarf að ganga upp áður en Hrefna kemst í endurhæfingu á Grensás, segir Eydís Ósk í samtalinu við Norðanátt.
Þeim sem vilja styðja fjölskylduna er bent á eftirfarandi reikningsnúmer:
Reikningsnúmer: 0159-05-402812
Kennitala: 150576-3509