Hreindís Ylva og hljómsveit halda tónleika á þrettándanum

Hreindís Ylva og hljómsveit halda tónleika á kaffihúsinu Álafosskvos í Mosfellsbæ, föstudagskvöldið 6. janúar nk. og hefjast tónleikarnir kl. 21.

Flutt verða lög af geisladisknum Á góðri stund sem kom nýlega út en þar eru flutt dægurlagaperlur Erlu Þorsteinsdóttur söngkonu, m.a. lögin Heimþrá, Draumur fangans, Kata rokkar og fleiri.

„Endilega komdu og eigðu notalega stund með okkur á Kaffihúsinu á þrettándanum... tilvalið að mæta tímalega of fá sér eitthvað gott að borða fyrir tónleikana,“ segir í fréttatilkynningu.

Miðaverð er 1500 kr. og fer miðasala fram við inngang.

 

Fleiri fréttir