Hross í þjálfun hjá Hólanemum

Í júní var opnað fyrir pantanir fyrir hross í frumtamningu og þjálfun hjá Hólanemum, á fyrri hluta haustannar. Afar mikil eftirspurn hefur reynst vera eftir plássum í frumtamningu, töluvert meiri en hægt verður að sinna. Haft verður samband við eigendur hrossanna á næstu dögum, segir í fréttatilkynningu frá Hólaskóla.

Enn eru laus nokkur pláss í þjálfun á umræddu tímabili, 26. ágúst til 19. október. Þjálfunin hentar fyrir (meira) tamin hross á 5. – 12. vetri, af öllu tagi.  Þó eru ekki tekin gölluð hross eða hættuleg, og þurfa hrossin m.a. að vera laus við hrekki, rokur, slægð, húslesti og kaldlyndi. Við komuna heim að Hólum þurfa þau að vera í lágmarksþjálfun og járnuð.

Þetta námskeið er alhliða þjálfun reiðhests með áherslu á bætta svörun ábendinga, jafnvægi, hreyfingar og rými á öllum gangtegundum. Kostnaður fyrir tímabilið er kr 75.000 og er allt uppihald, auk járninga (ef við á) og ormalyfsgjafar innifalið. Hægt er að sækja um á vef Hólaskóla.

Fréttatilkynning 

Fleiri fréttir