Hrútaveisla í Akrahreppi

Sýningin er sú fyrsta í hreppnum eftir rúmlega tveggja áratuga bann meðan Tröllaskagahólf taldist sýkt svæði og þar með ólöglegt að selja fé á milli bæja innan þess. Síðastliðið haust var þessu banni hins vegar aflétt er gerðar voru breytingar á varnarlínum vegna sauðfjársjúkdóma og hólfið flokkað sem ósýkt svæði utan Dalvíkurbyggð norðan Hámundarstaða en Tröllaskagahólf nær frá Héraðsvötnum í vestri til Eyjafjarðarár í austri.

Myndarhrútar leiddir fyrir dóm.

Á Hrútaveislunni voru sýndir hrútar á öllum aldri og þeir metnir eftir kúnstarinnar reglum og voru síðan stigahæstu gripirnir boðnir upp. Börn sýndu skrautgimbrar og bauð Kvenfélag Akrahrepps öllum viðstöddum í kaffi.

Fleiri fréttir