Húnar aðstoða fasta ferðamenn á aðfangadagskvöld

Björgunarsveitarmenn frá Björgunarsveitinni Húnum á Hvammstanga lögðu erlendum ferðamönnum í lið á aðfangadagskvöld en ferðamennirnir, sem voru frá Suður-Kóreu, höfðu fest sig á Holtavörðuheiði. „Um leið og kirkjuklukkurnar hringdu inn jólin klukkan sex þá hringdu símar félaga í sveitinni í samhljómi með útkallsboðum,“ segir á Facebook-síðu sveitarinnar.
Húni 1 lagði þegar af stað frá Hvammstanga til aðstoðar við fólkið. Síðar um kvöldið, kl. 19:30, skrifuðu þeir að búið væri að koma Kóreubúunum aftur á veginn og héldu þau áfram ferð sinni suður af.
„Nú geta strákarnir haldið heim á leið og í jólamatinn,“ segir loks í færslunni.