Húnaþing vestra samþykkir fjárhagsáætlun fyrir 2013

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti framlagða fjárhagsáætlun ársins 2013 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2014-2016  fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki á fundi sínum þann 22. nóvember sl. Tekið er fram í fundargerð að sveitarstjórn Húnaþings vestra hafi staðið saman að gerð fjárhagsáætlunarinnar og að meirihluti og minnihluti sveitarstjórnar hafi sameinast um megin áherslur og inntak áætlunarinnar fyrir komandi rekstrarár.

Um gerð fjárhagsáætlunar 2013 segir að á síðustu árum hefur sveitarstjórn Húnaþings vestra brugðist við óhagstæðu efnahagsumhverfi með þeim skynsamlega hætti að ráðast í beinar hagræðingaraðgerðir, og lækkun skulda.

Þessar aðgerðir hafa skilað þeim árangri að reksturinn er í ágætu jafnvægi og fjárhagsstaða sveitarfélagsins hefur styrkst umtalsvert. Þrátt fyrir þá staðreynd þarf enn að gæta aðhalds og sparnaðar í rekstri og eftirsóknarvert er að lækka skuldir Húnaþings vestra enn frekar. Í því samhengi skal nefnt að á árinu 2012 hafa engin ný lán verið tekin og ekki er gert ráð fyrir neinni lántöku í fjárhagsáætlun ársins 2013,“ segir í fundargerð.

Tekin var sú ákvörðun að hækka ekki skatta á íbúa sveitarfélagsins þrátt fyrir örðugt rekstrarumhverfi og miðað hefur verið við að gjaldskrárbreytingar séu almennt í samræmi við verðlagsbreytingar.

Gert ráð fyrir nokkrum fjárfestingum og framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins á árinu 2013, t.d. gatna- og gangstéttarframkvæmdir, úrbætur í tæknirými íþróttamiðstöðvar, lok framkvæmda í Brúarhvammi, aðgengismál á lóð grunnskólans á Hvammstanga og uppbygging göngustígs á Laugarbakka.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2013

Samkvæmt fundargerð er áætlunin lögð fram með 8,4 millj. kr. tekjuafgangi af rekstri A-hluta samstæðunnar. Áætlað er að fráveita, hitaveita og vatnsveita skili rekstarafgangi en að önnur B-hluta fyrirtæki séu rekin með halla.

Rekstarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 43,2 millj. kr. en heildarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð um 1,7 millj. kr. Tekjur A-hluta eru áætlaðar 991,0 millj. kr. en gjöld 980,0 millj. kr. án tillits til fjármagnsliða.Tekjur samstæðunnar eru áætlaðar 1.131 millj. kr. en gjöld 1.088 millj. kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 41,6 millj. kr.

Handbært fé frá rekstri til greiðslu afborgana lána og til fjárfestinga er 78,0 millj. kr. Hlutfall veltufjár frá rekstri er áætlað 6,9%. Áætlað er að afborgun langtímalána nemi kr. 61,0 millj. kr. á árinu 2013. Ekki er gert ráð fyrir nýjum lántökum á árinu 2013.

Handbært fé í árslok 2013 er áætlað kr. 64,0 millj. kr. sem er lækkun um 13,7 millj. kr. frá ársbyrjun. Frá árinu 2012 er gert ráð fyrir hækkun eigin fjár um 1,7 millj. kr. Frá árinu 2012 er gert ráð fyrir að skuldir og skuldbindingar lækki um 30,6 millj. kr.

Fleiri fréttir