Hundfúll er pínu hugsi...
Ætli brúneggin verði ekki spæld ef þau verða ekki með í jólabakstinum?
Fleiri fréttir
-
Aþena nældi í sigur þrátt fyrir magnaða endurkomu Stólastúlkna
„Við erum staðráðnar í að svara fyrir okkur á þriðjudaginn og ég skora á alla Tindastólsmenn að mæta í Síkið og fylkja sér að baki okkar og aðstoða okkur við að vinna þann leik svo við getum farið í hreinan úrslitaleik eftir það,“ sagði Helgi þjálfari Margeirs eftir grátlega naumt tap gegn liði Aþenu í Breiðholtinu í gærkvöldi. Eftir magnaða endurkomu Stólastúlkna þar sem þær unnu upp níu stiga mun á 85 sekúndum undir lok leiksins þá var það Sianni Martin sem gerði sigurkörfu Aþenu með erfiðu skoti sem hún setti í. Lokatölur 80-78.Meira -
Minnisvarði um örlög séra Odds og Solveigar afhjúpaður
Frá því Agnar Gunnarsson flutti í Miklabæ í Blönduhlíð fyrir tæplega fjörtíu árum hafa honum verið hugleikin hin dapurlegu örlög sr. Odds og Solveigar. Agnar segir söguna af þeim hafa á sér þjóðsagnablæ, sem hefur lifað allt frá síðari hluta 18.aldar. Agnari langaði að minningu þeirra yrði haldið á lofti inn í komandi tíma og hefur af því tilefni látið gera minnisvarða sem vígður var við hátíðlega athöfn laugardaginn 27. apríl.Meira -
,,Ég finn alltaf eitthvað fallegt þar sem mér langar til að gera,,
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 04.05.2024 kl. 09.12 klara@nyprent.isKristín Lind Sigmundsdóttir er 24 ára gömul og er búsett á Króknum ásamt kærastanum sínum honum Hauki Ingva og litlu stelpunni þeirra Kötlu Daðey. Kristín Lind vinnur á Heilbrigðisstofnun Norðurlands vestra og er að klára sjúkraliðanám.Meira -
Stór sigur á Stjörnunni í Garðabænum
Eftir tvo tapleiki í byrjun móts var pínu presssa á liði Tindastóls að krækja í stig í Garðabænum í kvöld þegar Stólastúlkur sóttu lið Stjörnunnar heim. Eins og reikna mátti með sat lið Tindastóls aftarlega á vellinum en beitti snörpum skyndisóknum þegar boltinn vannst. Þrátt fyrir að heimastúlkur hafi verið talsvert meira með boltann í kvöld þá unnu gestirnir sanngjarnan sigur, gerðu eitt mark í hvorum hálfleik og hefðu hæglega getað unnið stærra. Lokatölur 0-2.Meira -
Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní
„Við erum bjartsýn en nú er þetta í höndum íbúa,“ er haft eftir oddvitum Húnabyggðar og Skagabyggðar á Facebook-síðu Húnabyggðar í kvöld en sveitarfélögin hafa samþykkt samhljóða að setja sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningu í júní.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.